Ferð sem hentar þeim sem hafa einhverja reynslu af því að vera á hestbaki sem og fullfærum reiðmönnum. Ferðin tekur tvær og hálfa klukkustund í reið
Þetta svæði á sér mikla sögu sem rakin er allt aftur til landnáms. Þá var umferð þarna talsverð en leiðin frá Reykjavík og á þingvelli lá að hluta til yfir þetta svæði sem og skreiðagötur. Náttúran hér á landi getur verið óblíð og veðrin válind, urðu menn oft á tíðum úti á leið sinni á milli bæja eða við það að sinna búverkum. Sagðar verða sögur af svæðinu sem tengjast slíkum óhöppum.
Ferðin tekur tvær og hálfa til þrjár klukkustundir í reið.
Ferðin hentar vönum knöpum.
Verð frá 28000
[metaslider id=931]