Ferð 5, Upp, upp upp á topp.
Viltu sjá Reykjavík frá einstöku sjónarhorni? Við bjóðum upp á ferðir á topp Hádegisfells, sem er einstök upplifun fyrir alla vana knapa.
Ferðin tekur tvær klukkustundir í reið, hún hentar einungis vönum knöpum.
Frá toppi Hádegisfells má sjá vítt og breitt yfir Reykjavík og nærsveitir. Hádegisfell stendur á mörkum byggðar og því gefst einstakt tækifæri til að sjá óspilta náttúruna mæta borgarlífinu. Ferðin er nokkuð krefjandi og því hentar hún eingöngu vönum knöpum.
Ferðin tekur tvær klukkustundir í reið.
Verð frá 16800kr